Við erum búin að föndra 25 jólakort. Það tók tvo daga og olli þunglyndi hjá mér. Ég er nefnilega ekki sérlega hæfileikaríkur við að klippa og skera í pappír og búa til lifandi og skemmtileg kort og ég viðurkenni fúslega að þegar Halla tók að hanna sín mósaíkverðlaunakort meðan ég límdi þurrkuð lauf eða annað slíkt á stífan pappa eða klippti út flygillaga kort með mislukkuðu hljómborði vaknaði í mér öfund og minnimáttarkennd. Hún kraumaði í mér þar til ég sá ekki annað í stöðunni en skella Jóhann Sebastían á fóninn, fyrir valinu varð há moll messan. Ég kynntist henni bara í dag og í ljósi þess hversu mikill Bachari ég er (50% af iPodinum er Bach) skammaðist ég mín þegar í ljós kom að þetta verk er ekki jarðneskt og varla himneskt heldur, það er bara allt.
Nú erum við búin að skrifa fjögur kort, sjálfstraust mitt sekkur áfram. Annað hvort er ég of formlegur eða of hjartanlegur - amk segir Halla það en hún er betri að orða alveg eins og það á að vera. Nú þori ég varla að hugsa þessa einföldu texta til enda, hvað þá skrifa þá með gullpenna sem ekki er hægt að afmá af glæstum kortunum. (Halla segir reyndar að það sé halló að skrifa glæstum kortum, það noti maður bara um glæsta sigra og slíkt... og já, ég var sem sagt að lesa þessa færslu upp fyrir hana til að fá samþykki, svo lítill er ég...) En mér finnst þau glæst og hefst því hér upprisa mín og sjálfstæðisbarátta. Nú skal ég skrifa eins og mér finnst og svo bara loka ég umslögunum áður en Halla kemst í þau.
Mandarínur eru hinn fullkomni ávöxtur. Epli eru of stór, appelsínur líka auk þess að vera iðulega of súrar eða sætar, fleiri ávextir koma mér ekki í hug að sinni en þeir eru allir verri en mandarínur. Mandarínubátarnir níu hafa svo frábæra áferð og passlega mikinn safa í hlutfalli við kjöt, þið vitið, við fyrsta bitann sprautast örlítið súr safinn um góminn en kjötið sjálf er sætt og gefur því idealt eftirbragð. Epli hafa ekki einu sinni eftirbragð, appelsínur hafa alltof dómínerandi eftirbragð þannig að mann langar helst til að hrækja kjötinu útúr sér þegar lítið ber á.