Það er sannarlega ástæða til þess að glotta eins og api þegar maður fær að útskrifast áður en maður byrjar. Svo er hægt að 'uppfæra' BA-gráðuna sína í mastersgráðu þremur árum eftir alvöru-útskrift, með einu símtali. Að ógleymdu sérríglasinu sem maður fær fyrir að mæta með nelliku í súbfúsknum (klæðnaður að ofan) í próf.
Á sólríkum vordegi
sitja hofróðurnar í Christ Church í glugganum, dingla tánum og tala sjálfsagt um hvað það sé orðið erfitt að fá gott þjónustufólk.
Í háskólanum fyrirfinnst hin súrrealískasta sérfræðiþekking (þið megið búast við fleiri myndum sem demónstrera það). Þessi er nú samt áreiðanlega bara yfirvarp fyrir einhver orgíuklúbb.
Spurning um sjálfsaga.
Einnig spurning um sjálfsaga: Ég skrifaði víst undir samning þess efnis að ég geri ekki tilraun til að veiða fiskana í tjörninni fyrir utan kollegíið mitt.
Hér eru snyrtilegar grasflatir heilagar. Þær eru hvarvetna umkringdar skiltum með áletrunum á borð við "Gangið ekki á grasinu" og "Þögn! Grasið sefur!".