Friday, March 27, 2009

Nokkrar myndir frá Oxford, svona rétt til þess að blása lífi í bloggið



Það er sannarlega ástæða til þess að glotta eins og api þegar maður fær að útskrifast áður en maður byrjar. Svo er hægt að 'uppfæra' BA-gráðuna sína í mastersgráðu þremur árum eftir alvöru-útskrift, með einu símtali. Að ógleymdu sérríglasinu sem maður fær fyrir að mæta með nelliku í súbfúsknum (klæðnaður að ofan) í próf.



Á sólríkum vordegi


sitja hofróðurnar í Christ Church í glugganum, dingla tánum og tala sjálfsagt um hvað það sé orðið erfitt að fá gott þjónustufólk.



Í háskólanum fyrirfinnst hin súrrealískasta sérfræðiþekking (þið megið búast við fleiri myndum sem demónstrera það). Þessi er nú samt áreiðanlega bara yfirvarp fyrir einhver orgíuklúbb.



Spurning um sjálfsaga.



Einnig spurning um sjálfsaga: Ég skrifaði víst undir samning þess efnis að ég geri ekki tilraun til að veiða fiskana í tjörninni fyrir utan kollegíið mitt.



Hér eru snyrtilegar grasflatir heilagar. Þær eru hvarvetna umkringdar skiltum með áletrunum á borð við "Gangið ekki á grasinu" og "Þögn! Grasið sefur!".

4 comments:

Anonymous said...

Ó, hvað ég sakna subfúsksins míns! Ég held ég verði að koma mér upp svoleiðis fyrir kröfugönguna 1. maí, nú eða 17. júní.

Halla Oddný said...

Þú þarft nú að fara að koma til okkar í sérrí, í súbfúsk eða súbfúskslaus.

Arngunnur Árnadóttir said...

frábærar myndir. fáránlega krúttleg sú fyrsta maður. og gullfiskarnir maður!

Ásta og Ernir said...

En skemmtilegt blogg!
Ég er að digga fiskana!

Kv. Ásta